fjárlög 2027.
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir einlægt ágætissvar. Mig langar aðeins að venda kvæði mínu í kross. OECD sagði um Ísland í fyrra að meira en 40 stiga lækkun á meðalárangri PISA frá 2006–2022 gæti dregið úr heildarframleiðni um meira en 5% sem eru u.þ.b. 280 milljarðar. Við erum að tala um smáaura hér í öðrum umræðum. Frændur okkar á Norðurlöndunum hafa allir boðað til neyðarfunda og ríkisstjórnir komið saman út af niðurstöðunum á Norðurlöndunum. Danir, Svíar, Norðmenn, þetta er í öllum fjölmiðlum. Það er stanslaust verið að tala um þetta. Það eru fundir úti um allt. Forsætisráðherra, fjármálaráðherra og menntamálaráðherra. Menntamálaráðherra er ekki skilinn eftir einn úti á berangri eins og hér á Íslandi. Íslendingar eru í miklu verri stöðu en Norðurlöndin grípa til þessa ráðs og þau sjá það að æska landsins skiptir meira máli en svo að málið sé þagað í hel af öðrum ráðherrum en mennta- og barnamálaráðherra.
Mín spurning er því sú til hæstv. mennta- og barnamálaráðherra hvort henni sé ekki kalt þarna einni úti. (Forseti hringir.) Ég vil líka spyrja hvort ekki sé neinna annarra viðbragða að vænta frá ríkisstjórninni varðandi málið en það að skilja mennta- og barnamálaráðherra einan eftir úti til að svara fyrir málið, (Forseti hringir.) á meðan ríkisstjórnir Norðurlandanna koma saman, halda blaðamannafundi, eru búnir að skipuleggja málþing langt fram í tímann. (Forseti hringir.) Við sjáum á hvaða stað íslensk menntamál eru, metnaðarleysið og áhugaleysið er algert, fyrir utan einstaka ráðherra og þingmenn hér í salnum.
(Forseti (BergÓ): Forseti minnir þingmenn á að virða ræðutíma.)