fjárlög 2027.
Herra forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að ástandið er mjög alvarlegt. Ég lít á það sem er að gerast á hinum Norðurlöndunum í kringum okkur sem kannski frekar í beinu framhaldi af því að þau hafa í rauninni ekki fengið annan eins skell, eins og núna. Þau í rauninni hrundu mun meira í þessum PISA-könnunum en við. Það er margt mjög jákvætt sem kemur fram með börnin okkar hvað varðar PISA og þá sérstaklega hvað lýtur að, virðist vera, ánægju þeirra og vellíðan í skólanum sínum. En staðreyndin er sú að við erum enn að skrapa botninn og þetta á við um fleiri lönd en bara Norðurlöndin, Spán og meira og minna öll löndin sem PISA náði utan um eru í dálítið miklu sjokki. En við erum að spyrna okkur upp frá botni, hv. þingmaður, og ég tek heils hugar undir að það er verk að vinna og ég hef flaggað rauðu spjaldi. Það er því langt frá því að mér sé sama og ég bind miklar vonir við það að símafriðurinn okkar og bætt aðgengi barnanna okkar að náminu eigi eftir að snúa þessari ömurlegu þróun til betri vegar. Ég sé í rauninni ljósið við enda ganganna, hv. þingmaður, og ég hlakka til að sjá þann árangur sem við stefnum að.