fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Síðastliðna tvo áratugi hefur árangur íslenskra nemenda dalað í svokölluðum PISA-könnunum. Allt frá því að grunnskólar voru færðir frá ríki til sveitarfélaga árið 1996 hafa verið ýmis teikn á lofti og ákall um aukinn stuðning við grunnskóla landsins. Birtar hafa verið margar skýrslur er snúa að námsgögnum. Maður finnur skýrslu frá 2005 þar sem kallað er eftir endurnýjun námsgagna. Við erum með skýrslur frá 2023 þar sem farið er yfir 25 ára yfirfærslu grunnskóla frá ríki til sveitarfélaga þar sem einn af rauðu þráðunum er skortur á námsgögnum og að ríkið hafi ekki staðið sig nægilega vel við að styðja við grunnskóla landsins með því að gefa út ný námsgögn sem henta nemendum í breyttu samfélagi. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvaða skref eigi að stíga á næsta ári til að mæta þessari uppsöfnuðu þörf fyrir námsgögn sem menntamálaráðherrar síðustu áratuga virðast ekki hafa náð að svara. Hvað hyggst ráðherrann gera?
Við höfum rætt mikið um þessar PISA-niðurstöður hér í þingsal en kannski meira í fjölmiðlum. Við höfum verið að stíga þessi skref. Ráðherra lagði til frumvarp um matsferil. Hún hefur lagt fram frumvarp um símafrí. Hún hefur boðað frumvarp um að setja auknar hömlur á samfélagsmiðla, boðað átak í svokölluðum STEM-greinum til að byggja undir raunvísindaþekkingu nemenda og hún hefur einnig lagt til mál sem snúa að því að styðja við íslenskukennslu nemenda af erlendum uppruna. Þetta þykir mér ansi myndarlegur listi í bland við það að ég heyri að það á að fara í sókn í námsgögnum, eitthvað sem hefur ekki gengið upp síðustu áratugi. Er eitthvað meira á þessum lista sem hún myndi vilja draga fram, sérstaklega þetta með námsgögnin?