fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég tek undir það að það verður spennandi að fylgjast með því hvaða árangri allar þessar aðgerðir munu skila. En það sem er mest spennandi við það er að nú erum við ekki bara að fara að bíða eftir næstu PISA-könnun. Ég held að þetta sé hugsanlega eitt stærsta skrefið sem við höfum verið að stíga á síðustu árum, þ.e. innleiðing matsferils sem við ætlum að leggja á hverju ári fyrir nemendur okkar þannig að við sjáum strax frá ári til árs hvað er að virka, hvar við þurfum að sækja fram o.s.frv.
Ég vil nýta tækifærið nú í seinna andsvari, þar sem mér finnst ráðherrann hafa farið vel yfir þessa málaflokka, og spyrja út í hjúkrunarrými. Það bárust nýlega fréttir af því að staðan á Landspítala hefði ekki verið jafngóð á allri þessari öld vegna uppbyggingar hjúkrunarrýma og að ekki séu lengur þessir biðlistar af fólki sem er að bíða eftir að komast í hjúkrunarrými, fólki sem hefði þurft að bíða inni á Landspítala. Þetta eru gleðifréttir. Mig langar því einfaldlega að spyrja: Á að halda áfram í þessu þjóðarátaki í umönnun eldri borgara eða telur ráðherrann að búið sé að byggja nægilega mörg hjúkrunarrými nú þegar?