fjárlög 2027.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Önnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir sínar spurningar og býð henni bara í heimsókn upp í ráðuneyti þar sem ég mun sýna henni það svart á hvítu að 8 verður 8 og 9 verður 9. Hins vegar erum við að innleiða þetta ferli akkúrat núna og það kemur ekki til framkvæmda fyrr en í vor. Það verða hæfnisviðmið. Það er þannig að á bak við 8 í íslensku er kannski lesskilningur, málstíll, stafsetning og ýmislegt annað, eins og hefur alltaf verið. Þannig eru kannski 20% af einkunninni 8 lesskilningur og önnur 20% verða kannski ritun og annað slíkt. Það hefur alltaf verið svo. Það sem mér hefur fundist frekar vefjast fyrir fólki, og ég get bætt því við, er af hverju tölurnar 1, 2 og 3 eru ekki gefnar í einkunn. Það er það sem ég hef heyrt en ekki það að 8 verði ekki 8, af því að það er einhver stórkostlegur misskilningur, 8 verður alltaf 8. En við munum ekki gefa einkunnir undir 4 heldur verður 1–4 bara óstaðið vegna þess að, ólíkt því sem áður var, ætlum við ekki að fella 10. bekkinga. Þau fá að fylgja sínum jafnöldrum út í framhaldsskólana þar sem þau eiga að fá að njóta sérstaks stuðnings miðað við það að þeirra námsframvinda var ekki talin nægjanleg til að geta setið við sama borð og allir aðrir sem höfðu hlotið hærri einkunnir. Við ætlum að taka utan um þau þar sem þau eru. Ég segi: Menntun fyrir alla. Ég vil mæta börnunum þar sem þau eru og ég er stolt af því að við skulum ekki láta þau sitja eftir.
En hvort við erum í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu, sem mér finnst eiginlega ekki eiga heima undir fjárlögunum og því sem ég er að ræða hér um menntakerfið, þá get ég nú bara einfaldlega sagt það að ég kom sjálf með tillögur að því að draga formlega til baka þessa aðildarumsókn sem Miðflokkurinn sagði að væri þegar dregin til baka og var víst nóg að skrifast á við Brussel. Hér vildi enginn líta við þessari hugmyndafræði minni yfirhöfuð. Sat ég bara uppi ein með hana, þó að önnur taktík sé að detta upp úr skúffunni núna og þér að segja, hv. þingmaður, þá bara skipti ég mér ekki af málinu. Ég er bara glöð að hafa staðið við að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla fór fram. Skilaboðin voru skýr, það var greitt atkvæði um eitt: Viljum við halda áfram aðildarviðræðum eða ekki? Svarið var skýrt. (Forseti hringir.) Það var nei, við erum ekki að fara að halda áfram aðildarviðræðum.