fjárlög 2027.
Herra forseti. Já, nú er ég eiginlega aðeins ruglaðri eftir þetta svar. Erum við þá að tala um að einhver fær einkunnina 5 og einhver sem ætti að fá 1 fær kannski 5 líka, þannig að sá sem kann helminginn af námsefninu fær sömu einkunn og sá sem kann 10%? Ég skil alveg að hæstv. ráðherra vilji gefa öllum tækifæri á að komast í áframhaldandi nám þótt það hafi ekki gengið nógu vel í 10. bekk. En það er kannski allt í lagi að sá sem tekur við nemandanum viti hvort hann sé með 10% kunnáttu eða 50%. Þannig að já, ég held að þetta þurfi eitthvað að skýrast betur.
Síðan langaði mig að koma aðeins inn á hjúkrunarrýmin af því að ég vil líka hrósa hæstv. ráðherra fyrir að setja þau í forgang. En hæstv. ráðherra hefur sagt að það muni enginn vera á bið eftir hjúkrunarrýmum þegar áætlunin verður komin á enda. En svo stendur í smáa letrinu að enginn á bið þýði einungis að 75% fái pláss vegna þess að þetta miðist við viðmið ríkisstjórnarinnar um að 75% einstaklinga fái pláss. Þannig að: Eru það 75% eða 100% sem komast inn í hjúkrunarrými?