fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu hér í dag og ég held að við ráðherrann séum sammála því að menntun sé undirstaða alls í samfélaginu, undirstaða hagsældar og verðmætasköpunar til framtíðar. Hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson fór hér yfir myndarlegan lista sem ráðherra er búinn að framkvæma eða hyggst framkvæma, sem er mjög gleðilegt.
Nýleg PISA-niðurstaða gefur okkur ákveðna vísbendingu um hver staðan er og ég veit að ráðherra mun beita sér af fullum þunga til að bæta þessa stöðu. En í fjárlagafrumvarpinu sem og í nýrri atvinnustefnu stjórnvalda er lögð áhersla á að efla STEM-menntun og aðgengi að STEM-námsefni í leik-, grunn- og framhaldsskóla en þar er m.a. gert ráð fyrir fjárveitingum til námsgagnaútgáfu í samstarfi við MMS.
Í ljósi þess að undanfarin ár hefur byggst upp mikilvæg innlend STEM-þekking á Íslandi, gegnum STEM Ísland, vakna spurningar um hvort og þá hvernig ráðherra hyggist nýta þá þekkingu sem hefur skapast hér en reynsla undanfarinna ára sýnir að STEM-menntun verður ekki innleidd og efld með einangruðum aðgerðum heldur með því að byggja upp samhæft og staðbundið vistkerfi þar sem sveitarfélög, háskólar og atvinnulífið vinna öll saman. Þannig að mín spurning til ráðherra er: Mun ráðherra leggja áherslu á þessa vistkerfisnálgun eða er einungis verið að tala um námsgögnin? Svo kannski í framhaldinu, hefur STEM-menntastefna eitthvað verið skoðuð, af því að þetta er nefnt sérstaklega í atvinnustefnunni og svo í fjárlögunum? Og í lokin: Telur ráðherra að STEM-menntastefna gæti haft áhrif á niðurstöður PISA og hjá íslenskum börnum?