fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að segja að niðurstöður PISA eru auðvitað viðvörun sem ber að taka alvarlega. Svarið er hins vegar ekki eitt skammtímaátak heldur skýr stefna og markviss eftirfylgni. Við þurfum að styrkja grunnfærni, lestur íslensku, stærðfræði, raun- og tæknigreinar, bæta í námsgögn, innleiða símafriðinn og styrkja starfsþróun kennara og fá foreldra með okkur í verkefnið.
Varðandi STEM-greinar vil ég segja það skýrt: Við þurfum vissulega betri námsgögn en við þurfum líka að byggja upp heildstætt umhverfi þar sem skólar, sveitarfélög, atvinnulíf og samfélagið allt vinna saman. Við eigum að nýta þá þekkingu og innviði sem þegar hafa byggst upp hér á landi, m.a. í gegnum STEM Ísland en ekki alltaf byrja frá grunni. Það er ánægjulegt að segja frá því að ríkisstjórnin hefur sett sérstaka áherslu í atvinnustefnu sinni á STEM. Við sjáum að t.d. stúlkunum okkar hefur hrakað allverulega í nýjustu PISA-könnun í stærðfræði, meira en drengjunum t.d. Þeim hefur hrakað líka meira á öðrum sviðum. Við sjáum að staðan er mjög alvarleg. Það er bara spurningin um hvenær við verðum búin að ná utan um þá árganga sem annars þurfa að ganga í gegnum þetta sem börnin okkar eru að ganga í gegnum núna, sem eru að útskrifast úr 10. bekk þar sem helmingur drengja er með það slæman lesskilning að þeir eiga litla möguleika á því að fara í erfiðara og þyngra nám. Það eru því mörg verkefni. Það eru líka risastór verkefni sem ég get bætt við hér og það eru líka risastór verkefni sem lúta einmitt að þeim hópi sem stendur svona illa eftir tíu ára grunnskólagöngu og hvort við sem samfélag getum gert eitthvað til að taka utan um það og veita þessum einstaklingum tækifæri.
Mig langar bara til að segja við þingheim okkar allan eins og hann leggur sig: Þetta mál, börnin okkar, á ekki að vera pólitískt. (Forseti hringir.) Þetta á að vera vilji okkar allra til verksins og ég hef fulla trú á því að við eigum eftir að sýna það og sanna í þessum sal hvers við erum megnug þegar við ætlum að gera vel.