158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[20:41]
Horfa

Sandra Sigurðardóttir (V):

Virðulegi forseti. Kærar þakkir fyrir þetta, ráðherra. Mig langar að beina sjónum mínum aðeins að íþróttum og Þjóðarhöllinni. Ráðherra byrjaði framsögu sína á að tala um litlu stúlkuna og er kannski búin að svara svolítið af þessari spurningu sem ég er að bera upp núna, en engu að síður er þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi er eitt öflugasta forvarnatækið sem við höfum. Þar fá börn og ungmenni tækifæri til að tilheyra hópi, eignast vini og upplifa árangur og ábyrgð. Öflugt íþróttastarf getur einnig haft áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu. En eins og við komum inn á áðan geta íþróttir líka létt álagi af skólakerfinu, heilbrigðiskerfinu og velferðarkerfinu. Í þessu fjárlagafrumvarpi er gert ráð fyrir 4,4 milljörðum í málaflokk íþrótta- og æskulýðsmála og þar af 2,4 milljörðum í Þjóðarhöllina. — Ég þarf að stytta mál mitt hérna aðeins.

Spurning mín til hæstv. ráðherra er: Telur ráðherra að við séum að horfa á íþróttir sem fjárfestingu í forvörnum og lýðheilsu í þessu frumvarpi? Hvernig horfir það við íþróttastarfi á landsbyggðinni? Getur Þjóðarhöllin markvisst dregið úr álagi og kostnaði í skólakerfinu og heilbrigðiskerfinu, svolítið eins og í dæminu um litlu stelpuna sem ráðherra talaði um í upphafi?