fjárlög 2027.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvar. Hvað íþróttir varðar er ég hjartanlega sammála hv. þingmanni. Íþróttastarf er ekki aðeins tómstundastarf heldur er það öflugt forvarnastarf, lýðheilsustarf og félagslegt úrræði. Þjóðarhöll er mikilvæg fjárfesting en hún má aldrei verða öll íþróttastefna okkar. Börn um allt land þurfa að hafa raunveruleg tækifæri til þátttöku óháð búsetu eða efnahag foreldra. Ég hef miklar áhyggjur einmitt af því að nú virðist kostnaður vera orðinn það mikill að það skipti orðið máli hvernig efnahagur foreldranna er, efnaminni foreldrar hafa ekki orðið bolmagn lengur til þess að gefa börnunum sínum tækifæri á því að taka þátt í mótum og ferðast um og annað slíkt. Þetta er verkefni líka og ég hef verið í samtali við íþróttahreyfinguna og er öll af vilja gerð til að gera betur hvað þetta varðar. Það var nú bara í vor sem ég skrifaði undir tæplega 2 milljarða samning við ÍSÍ þar sem við erum að veita fjármuni og leggja sérstaka áherslu á að styðja við fararsjóði og aðra sjóði fyrir börn úti á landi sem eiga erfiðara uppdráttar. (Forseti hringir.) En við verðum að gera svo mörgum sinnum miklu betur því það verða alltaf einhverjir út undan og það er ekki það sem við viljum sjá.