158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[20:46]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Já, það er alltaf sárt, það verður bara að segjast eins og er, þegar þarf að hækka og leggja frekari álögur á fólkið í landinu. Það liggur alveg fyrir og það hefur ekki verið mín mantra. En það breytir ekki þeirri staðreynd að þetta hefur verið gert áratugum saman, líka í ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks þar sem í rauninni á hverju einasta ári hefur þessi fasta krónutala fylgt. En það er svolítið athyglisvert að vera að tala um öll fjárlögin í heild sinni þegar ég ætlaði nú af mikilli gleði að tala um menntamál. Mér finnst þau skipta miklu máli og það sem heyrir undir mitt ráðuneyti.

Fyrst hv. þingmaður nefnir kílómetragjald þá skulum við bara tala um þessa 1 kr. og 10 aura sem er hrópað um að séu tæp 16% sem þýða heilar tæpa 16.000 kr. á ári fyrir þann sem keyrir 15.000 km. Ég segi fyrir mína parta að meðalfjölskyldan mun sennilega vera þakklátari fyrir þetta en að olíugjaldið hefði haldið áfram og bensínlítrinn væri nú 94 kr. hærri en hann raunverulega er. En það er í ýmis horn að líta og ég ætla ekki að fara að argaþrasast um það hvort heldur þetta sé svona eða hinsegin. Allar álögur á borgarana eru erfiðar og sérstaklega fyrir þá sem höllustum fæti standa í samfélaginu. Það liggur algerlega fyrir, það liggur fyrir að bognu bökin má illilega beygja meira eins og ég hef ítrekað tekið fram í þessum ræðustól. En það breytir heldur ekki þeirri staðreynd, þegar við tölum um barnabætur að þar er einkennilegt að einhverjir hafa farið í gegnum glufur í því kerfi, þar er fjölskylda með yfir 40 milljónir í árstekjur sem er með barnabætur. Það eru að fara á þriðja milljarð króna í barnabætur til hátekjufólks vegna glufu sem við fengum frá fyrirrennurum okkar í ríkisstjórn. Í þessar glufur ætlum við að reyna að sparsla og færa þessa fjármuni niður til þeirra sem þurfa meira á þeim að halda. Þannig að það eru ýmis verk að vinna og í ýmis horn að líta. Og áfram veginn, hv. þingmaður, í næsta andsvari.