fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. En bíddu, skildi ég það rétt að ekki væri gert ráð fyrir auknum fjárveitingum til framhaldsskólanna milli umræðna, þrátt fyrir að ljóst væri að þessir stóru árgangar væru að koma inn og tölurnar lægju ekki fullkomlega fyrir? Ég skildi textann í greinargerðinni með þeim hætti að það myndi þurfa að bæta framhaldsskólanum það upp. Virðulegur forseti. Ég held að það sé mikilvægt að fjárlaganefnd fái alla vega botn í þetta.
En mig langaði líka að spyrja um vinnustaðanámið. Ég sé hér að það eru aftur komnir fjármunir í uppbyggingu verknámsskólanna og ég heyrði hæstv. ráðherra fara yfir það. Það er gott, það er mikilvægt. Reyndar held ég að hæstv. ráðherra viti það jafn vel og ég að þeir fjármunir sem ætlaðir eru í það verkefni munu væntanlega ekki duga fyrir öllum þeim verkefnum sem liggja fyrir. En hér segir í kafla 20.30, um vinnustaðanám og styrki, að heildarfjárframlög til þess málaflokks séu þau sömu og á síðasta ári og meira að segja í fylgiritinu með fjárlögum á svo að lækka þá upphæð um 150 millj. kr. á næsta ári. Nú er þetta sjóðurinn sem aðstoðar krakkana við að klára námið sitt, komast út á vinnumarkaðinn og fá starfsreynslu. Þetta eru styrkir til þeirra fyrirtækja eða þeirra iðnmeistara sem taka að sér nema. Er það raunverulega svo að hæstv. ráðherra sjái fyrir sér að hægt sé að lækka þann sjóð á sama tíma og það eru fyrirheit um að gefa í í iðn- og starfsnámi og á sama tíma og við viljum fjölga iðnmenntuðu fólki á Íslandi?