fjárlög 2027.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta síðari spurningu. En hvað mun fara fram í hv. fjárlaganefnd á eftir að koma í ljós. Við erum náttúrlega ekki búin að sjá enn hvað verður á milli umræðna en við sjáum hvað setur. Hvað lýtur að verknámsskólunum okkar er alveg rétt hjá hv. þingmanni að ég hef bara aldrei á minni mjög svo löngu ævi vitað til þess að kostnaðaráætlanir hafi gengið eftir hjá ríkinu og við höfum því miður oft setið í súpunni með það. En það breytir ekki þeirri staðreynd að hér er búið að fjármagna allan undirbúning að þessum verknámsskólum sem við erum að fara að ráðast í og hlakka ég mjög mikið til — við erum nú að fara að opna einn glæsilegan slíkan, viðbygginguna við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, í vetur. Ég er að fara að heimsækja Verkmenntaskólann á Akureyri innan skamms því að þar er þörfin mjög mikil og þetta eru fjórir viðbótarverknámsskólar sem við erum að fara að ráðast í.
Það sem ég myndi líka vilja segja í sambandi við það sem hv. þingmaður er að tala um — ég skal bara segja honum það á eftir fyrst að ég er orðin rauð hérna — en það er ákveðið verkefni sem þarf að vinna þegar kemur að því að fyrirtæki taki til sín sveinana okkar til þess að gefa þeim sínar gráður. Það er mikið ójafnræði í því (Forseti hringir.) hvernig því hefur verið háttað og mun ég ráðast í ákveðnar breytingar hvað það varðar og kalla til mín Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins til að aðstoða við það að gera hlutina einfaldari og betri þannig að allir þeir sem þurfi á að halda (Forseti hringir.) sitji við sama borð því þeim er stórlega mismunað eins og staðan er í dag.