fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hæstv. svona heilt yfir hver hennar framtíðarsýn sé á helstu áskoranir í þessum málaflokki sem undir hana heyrir, þá á ég við menntamálin frekar en borðaklippingarnar hjá hjúkrunarheimilunum, þ.e. um menntamálin almennt, grunnskólann og framhaldsskólana. Er eitthvað sérstakt sem hún gæti nefnt sem væri sérstök áskorun í þessu? Frá mínum bæjardyrum séð, hvað þennan málaflokk varðar, finnst mér vera ákveðin áskorun að það er auðvitað fjölgun nemenda og mér hefur þótt sú þróun sem hefur verið, sú áhersla sem lögð er á að allir nemendur fari í framhaldsskóla, vera svolítið vafasöm vegna margvíslegra ástæðna.
Ég rak augun líka í það á forsíðu mbl.is, bara núna meðan ég var að bíða eftir að komast að í þessari umræðu, að það var viðtal við skólastjóra í Rimaskóla, Þórönnu nokkra Ólafsdóttur, sem veltir upp þeirri spurningu, og mér finnst það heiðarleg spurning, hvort það þurfi mögulega að stoppa af nemendur sem ekki ná viðmiðum. Hún nefnir að það séu börn sem klára skólann, hún er að tala um grunnskólana, sem aldrei hafa þurft að taka upp pennaveski eða reyna á sig á einn eða annan hátt og það er enginn metnaður vegna þess að það er hægt að klára og fara svo í framhaldsskóla. Mér fannst ég greina það í svari hæstv. ráðherra áðan að það sé orðið eitthvert sérstakt markmið að láta öllum líða vel og útskrifa alla með einhverri einkunn þannig að þeir geti komist í framhaldsskóla. Getur það hins vegar verið að það sé eðlilegt og það þurfi að styrkja frekar þá nemendur sem útskrifast úr grunnskóla án hæfniviðmiða til þess að fara út á vinnumarkaðinn strax í stað þess að láta þá þreyja þorrann í nokkur ár í framhaldsskóla sem þeir bersýnilega hafa hvorki nokkurn áhuga á né nokkra getu til? Getur ekki verið að þetta sé ein af áskorunum t.d. menntakerfisins sem verði núna a.m.k. næstu árin?