158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[21:03]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir hennar góðu fyrirspurn. Nú erum við með skólaskyldu til 16 ára aldurs og við erum með fræðsluskyldu til 18 ára aldurs. Það kannski skýrir að einhverju leyti hvers vegna það verður svona mikið brottfall einmitt á því tímabili þegar ungmenni eru búin að vera að þreyja þorrann í allt að tvö ár í framhaldsskólanum og eru kannski ekki með nógu mikla burði til þess að standa undir því. En það er nú bara lögum samkvæmt, það er fræðsluskylda til 18 ára aldurs, þannig að því verður náttúrlega ekki breytt hér og nú, það liggur fyrir. En ég skil hvað hv. þingmaður er að segja og ég er t.d. sú sem vill fara að skoða þetta kerfi sem hefur verið kallað skóli án aðgreiningar. Ég vil kalla þetta skóla fyrir alla. Það er ekki hægt að réttlæta það að hafa 24–26 börn í bekk sem tala jafnvel átta til tíu tungumál og eru með alls konar greiningar og það er ekki í mannlegu valdi fyrir nokkurn kennara einu sinni að geta staðið undir slíku álagi. Við þurfum í rauninni að fara að gera mjög margt, alveg eins og við þurfum að taka utan um börnin okkar þar sem íslenska er annað tungumál. Við þurfum að hjálpa kennurum okkar til þess að geta nálgast það að kenna börnunum okkar íslensku sem annað tungumál. Verkefnin eru svo mörg, þau eru svo ærin. Ég verð bara að viðurkenna það, ég vissi náttúrlega alltaf að það væri áskorun að verða mennta- og barnamálaráðherra, en ég hefði nú kannski hugsað mig um þrisvar um þrisvar ef ég hefði vitað að hún væri svona rosalega stór. Ég vildi óska þess að þeir hefðu verið duglegri og skilað þessu betur til mín heldur en raun ber vitni, ég segi bara ekkert annað en það.

Þess vegna segi ég það að núna gerum við þetta saman. Það er bara svoleiðis. Það er verk að vinna og við getum gert þetta saman. En skóli án aðgreiningar sem ég tel að sé í rauninni akkilesarhæll í mjög mörgu og þessi meðalmennska sem er í rauninni einkennandi inni í skólakerfinu núna — við eigum mjög fáa afburðanemendur, það er eins og það eigi að draga alla niður í meðaltalið og það fer mikil orka í þá sem eru með greiningar og sérþarfir. Þeir eiga að fá þjónustu fyrir sínar sérþarfir og þeir eiga að fá hana skilyrðislaust en ekki inni í bekk með þeim sem engar sérþarfir hafa.