158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[21:05]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og get tekið undir með henni að það fer kannski hlutfallslega mikil orka í þessi útgildi þarna sem ég held að þurfi að huga að hvort ekki sé betra að veita í annan farveg. Það var nefnt hérna að menntun væri upphaf alls og undir það tók hæstv. ráðherra. En það þarf líka að hafa það í huga væntanlega að menntun fer ekki bara fram í skólum. Hún fer einmitt fram líka með þátttöku í atvinnulífi og sú þróun er kannski orðin of mikil eða vond sem hefur verið að koma í veg fyrir að ungmenni taki þátt í atvinnulífinu á þessum aldri. Hæstv. ráðherra segir að því verði ekki breytt hér og nú. Nei, ekki kannski í kvöld, en til þess erum við nú í stjórnmálum, til að hafa áhrif á stefnu og löggjöf til framtíðar. Þess vegna væri áhugavert að vita hvort hæstv. ráðherra hefði áhuga á því að breyta einmitt þessum lögum sem gera það að verkum að hér er verið að reyna að troða öllum börnum, hverju einasta, inn í framhaldsskóla, jafnvel í bóklegt nám eða í verknám fyrir þá sem ekki treysta sér í bóklegt nám og verknámið látið einhvern veginn svolítið gjalda fyrir það að vera að taka á móti nemendum sem kannski hafa ekki áhuga á því að vera yfirhöfuð nemendur. Spurningin er hvort hæstv. ráðherra sjái fyrir sér að það þurfi að gera aðeins meiri grundvallarbreytingu (Forseti hringir.) í þessum málaflokki heldur en endalausa spretthópa eða menntastefnur til næstu fimm ára.