158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[21:10]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Já, það er rétt, ég hef hugsað mér að innleiða hér nýja hugsun sem heitir Menntun fyrir alla. Hvað lýtur að hallarekstri þá skal það sagt að hér voru 11 framhaldsskólar reknir með miklum halla í tíð fyrri ríkisstjórnar, hallarekstur sem við erum að aðstoða við að reyna að rétta úr núna. Ég tek undir með hv. þingmanni, við höfum gengið í gegnum ýmislegt, jarðelda, Covid og annað eins og flestar aðrar þjóðir, svo sem í sambandi við Covid. Það eru alltaf áskoranir og hugsanlega eigum við sem sitjandi ríkisstjórn eftir að fá eitthvað óvænt á fjörurnar, sem ég vona nú sannarlega ekki, en enginn veit sína ævina. En það breytir ekki þeirri staðreynd að svona er staðan og svona er það líka að vera í stjórnarandstöðu, að vera alltaf fúll á móti í stað þess að reyna að gera eitthvað sameiginlega og sýna það að við séum hér í sama liðinu þó að við séum ekki að deila heilum í sama stjórnmálaflokki. En það er alveg rétt. Ég mun taka öðruvísi á skóla án aðgreiningar heldur en nú er. Ég vil innleiða nýja hugsun, skóla fyrir alla. Ég var fatlaður nemandi í bekk með ófötluðum nemendum. Ég hefði gjarnan viljað hafa misst af því einelti og því álagi sem því fylgdi sem lítið barn.