158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[21:13]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Það er nú svo sem á snærum hæstv. háskóla-, nýsköpunar- og menningarráðherra að tala meira um kennaranámið sem slíkt, nema hvað að við eigum í samtali. Við munum breyta því og við munum koma með hvata. Í fyrri ríkisstjórn hafði verið kominn hvati til þess að efla áhuga fólks til þess að fara t.d. í sjúkraliðanám, fara í hjúkrunarfræðinám og annað slíkt. Okkur vantaði fólk í þessar starfsstéttir og það gekk mjög vel. Hugmyndinni var hrint í framkvæmd og hún gekk fullkomlega upp. Það var vel gert og við viljum bara halda áfram að gera vel. Við höfum fengið stuðning frá stjórnarandstöðuþingmönnum hvað lýtur að menntastefnu og menntamálum og ég mun ekki hika við að nýta mér (Forseti hringir.) þjónustu þeirra sem vita betur en ég hvernig við getum unnið hlutina. Ég hef verið að kalla alla upp á dekk og ætla að halda stóra faglega vinnustofu þar sem við munum sameiginlega, sama hvar í flokki við stöndum, (Forseti hringir.) vinna að því að gera hlutina betri.