fjárlög 2027.
Forseti. Ég mun hér í stuttu máli gera grein fyrir helstu atriðum fjárlagafrumvarpsins um málefnasvið sem heyra undir atvinnuvegaráðuneyti. Þau eru málefnasvið 12, 13, 14 og að hluta 7, 16 og 21. Samkvæmt frumvarpinu liggur fyrir að heildarfjárheimildir til þeirra málefnasviða sem undir atvinnuvegaráðuneyti heyra nema um 40,6 milljörðum kr. Þar munar mest um 28,1 milljarð til málefnasviðs landbúnaðar. Síðan eru þar 7,9 milljarðar til sjávarútvegs og fiskeldis, 2,7 milljarðar til málefnasviðs ferðaþjónustu og 1,2 milljarðar til markaðseftirlits og neytendamála.
Þegar horft er til breytinga á fjárheimildum frá gildandi fjárlögum lækka útgjöld til málefnasviða ráðuneytisins um 197 millj. kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026 en að teknu tilliti til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöld málefnasviða ráðuneytisins um 1,2 milljarða kr. Þegar horft er til einstakra útgjalda, að frátöldum launa- og verðlagsbreytingum, munar þar mest um 533 millj. kr. aðhaldskröfu á málefnasviði ráðuneytisins. Útfærsla aðhaldskröfunnar felur bæði í sér sértækar og almennar ráðstafanir.
Í ráðuneyti mínu höfum við einsett okkur að einfalda flókin kerfi, bæta þjónustu og tryggja að fjármunir hins opinbera stuðli að sterkara atvinnulífi. Eitt af lykilverkefnum á þeirri vegferð er Stofnun atvinnuveganna sem mun hefja starfsemi 1. janúar 2027. Stofnunin er sett á fót með sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs og er henni ætlað að sinna verkefnum á sviði sjávarútvegsmála, lagareldis, lax- og silungaveiði, fiskræktar, matvæla, dýravelferðar og heilbrigði dýra og plantna. Hlutverk og verkefni nýrrar stofnunar verða að mestu leyti hin sömu og forvera hennar með þeirri undantekningu að matvælaeftirlit verður jafnframt fært til hinnar nýju stofnunar frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaga. Með Stofnun atvinnuveganna verður til ný og öflug eftirlitsstofnun þar sem horft verður til þess að einfalda stjórnsýslu, tryggja öflugar starfsstöðvar um land allt ásamt því að auka skilvirkni fyrir eftirlitsþega, eftirlitsaðila og almenning. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að fjárveiting til Stofnunar atvinnuveganna verði rúmir 4,5 milljarðar kr.
Í ráðuneytinu er unnið að annarri stórri sameiningu af álíka miklum metnaði á stofnunum og verkefnum á sviði viðskipta, samkeppnis- og neytendamála með það að markmiði að mæta áherslum úr stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að tryggja sterkt samkeppniseftirlit, öfluga neytendavernd, hagstæð rekstrarskilyrði fyrirtækja og skilvirkni í samskiptum fyrirtækja og hins opinbera.
Áherslur mínar í atvinnuvegaráðuneytinu eru sem fyrr að skapa skilyrði fyrir verðmætasköpun og einfalda rekstrarumhverfi fyrirtækja. Á málefnasviði ferðamála er gert ráð fyrir 330 millj. kr. framlagi til að halda áfram með neytendamarkaðssetningu á Íslandi sem áfangastað en á þessu ári fara um 630 millj. kr. í verkefnið. Þetta er markaðssetning sem lengi hefur verið kallað eftir án þess að við því hafi verið brugðist. Því er nú verið að breyta. Ásamt þessu er lögð áhersla á að einfalda regluverk og stjórnsýslu í ferðaþjónustu, tryggja viðvarandi markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað ferðamanna og stuðla að aukinni dreifingu ferðamanna um landið. Frumvarp um náttúru- og innviðagjald, sem kynnt verður í samráðsgátt á næstu dögum, er liður í þeirri vegferð.
Forseti. Á málefnasviði sjávarútvegs og fiskeldis er lögð áhersla á að bæta skilyrði til aukinnar verðmætasköpunar með sjálfbæra nýtingu og vistkerfisnálgun að leiðarljósi. Í því skyni hafa á síðustu árum verið tryggðir fjármunir á fjárlögum til eflingar hafrannsókna og fiskveiðieftirlits. Þá hafa jafnframt verið tryggðir fjármunir á liðnum árum til að styrkja verkefni á sviði burðarþolsmats fjarðakerfa ásamt því að bæta eftirlit með sjókvíaeldi.
Á málefnasviði landbúnaðar er markmiðið m.a. að efla fæðuöryggi og skapa skilyrði til fjölbreyttari landbúnaðarframleiðslu með sjálfbærni og verðmætasköpun að leiðarljósi. Þar ber að nefna áframhaldandi eflingu kornræktar sem stefnt er að með aukinni innlendri framleiðslu á korni til fóðurs og manneldis. Áfram verður unnið að innleiðingu verndandi arfgerða gegn riðuveiki og gert ráð fyrir að útboð á söfnunarkerfi dýraleifa verði klárað fyrir árslok 2026.
Mestu útgjöld í mínu ráðuneyti tengjast búvörusamningum. Samið hefur verið um framlengingu þeirra óbreyttra út árið 2027 en stefnt er að því að heildarendurskoðun á stuðningskerfi landbúnaðar liggi fyrir á komandi árum. Þá er gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu að framlög til búvörusamninga verði um 20,2 milljarðar kr. á næsta ári sem eru um helmingur af heildarútgjöldum málefnasviða ráðuneytisins. — Ég er búin að fara á hundavaði yfir helstu atriði og hlakka til samtalsins.