158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[21:20]
Horfa

Árni Helgason (S):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra kærlega fyrir sína framsögu og yfirferð. Ég vil fá að nota tækifærið hér í kvöld og spyrja ráðherrann aðeins út í nokkur atriði sem vöktu sérstaka athygli mína þegar kom að atvinnumálum í frumvarpinu. Ég vil beina sjónum mínum a.m.k. fyrsta kastið að ferðaþjónustunni. Þar lætur nærri að ríkisstjórnin ætli sér að sækja um 10 milljarða til greinarinnar á næsta ári aukalega. Stærstu póstarnir eru að það á að færa baðlón upp í 24% virðisaukaskattsþrep sem er áætlað að gefi 4 milljarða, upptaka ferðamannapassa sem á að gefa 5 milljarða, hækkun kílómetragjalds sem er að vísu ekki alveg sundurgreint, en það lætur nærri að ferðaþjónustan sé með líklega um fjórðung af þeirri upphæð eða eitthvað um milljarð. Þegar frumvarpið er lesið gaumgæfilega má sjá ýmislegt fleira, t.d. er gert ráð fyrir að tekjur Náttúruverndarstofnunar muni hækka um sirka 32%. Tekjur þeirrar stofnunar koma einkum af gjaldtöku á innviðum og ferðamannastöðum, svo sem bílastæðum, aðstöðu og þess háttar. Ef við einföldum þetta og reynum að átta okkur á hvernig þetta lítur út í raunveruleikanum þá má væntanlega gera ráð fyrir að útlagður kostnaður ferðamanns sem kemur hingað til lands, þegar þessar breytingar hafa átt sér stað — fer um landið á eigin bíl, heimsækir og leggur við náttúruperlur eins og t.d. Jökulsárlón og fer kannski í baðlón — aukist nánast á hverjum einasta viðkomustað. Á sama tíma, eins og hæstv. ráðherra nefndi, er ríkisstjórnin að boða langþráð, og ég held að flestir hljóti að fagna því, átak í markaðssetningu Íslands sem ferðamannastaðar og nefndar eru 330 millj. kr. í því samhengi.

Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig fer það saman í hennar huga að vera í aðra röndina að hrinda af stað átaki sem á að fá ferðamenn til landsins en í hina hækka mjög verulega gjöld þeirra sem hingað koma með þeirri hættu að vinsælir áfangastaðir verði dýrari? Og munum sérstaklega í þessu samhengi, virðulegi forseti, að Ísland er í samkeppni við önnur ferðaþjónustulönd, aðra áfangastaði, og upplifun ferðamanna hér, (Forseti hringir.) sem er yfirleitt mjög jákvæð að öllu leyti gagnvart náttúru, landi og þjóð, er hins vegar sú að verðlag sé fullhátt.