fjárlög 2027.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Árna Helgasyni fyrir prýðisgóðar spurningar. Þetta er auðvitað lykilatriði þegar kemur að uppbyggingu og verðmætasköpun í okkar helstu atvinnugreinum, að þar ráði skynsemin för. Ég heyri þessar tölur og þessar forsendur sem hv. þingmaður gefur sér og mig langar að byrja á því að tala um virðisaukaskattshækkanirnar á ferðaþjónustu þar sem verið er að færa þennan litla hluta sem dvalarrýmin eru í almenna virðisaukaskattsþrepið sem önnur atvinnustarfsemi á Íslandi ber. Ég hygg að það sé nokkuð sem flest baðlón geti staðið undir, ef marka má áhuga ferðamanna sem hingað koma á að sækja þessa staði. Við vitum að þetta gengur vel. Ég hef vissulega ákveðnar áhyggjur af því, ekki bara þegar kemur að þessum virðisaukaskatti á baðlónin, heldur almennt þessari dreifingu ferðamanna um landið. Við erum með ákveðin svæði sem búa við mikinn fjölda ferðamanna svo það jaðrar við ágang og síðan önnur mun kaldari svæði. Markmiðið er auðvitað að byggja upp innviði þannig að svæðin geti tekið á móti þeim fjölda ferðamanna sem þar er, og jafnframt að reyna eins og kostur er að dreifa ferðamönnum þó svo að þeir séu sjálfstæð eining. Það er virðisaukaskattsmálið. Þegar kemur að innviðagjaldinu þá er þetta býsna svört mynd sem þingmaður dregur upp vegna þess að frumvarpið sem ég er með í smíðum miðar fyrst og fremst að því að aðstoða við að dreifa ferðamönnum þannig að við erum með þá staði í huga sem mest ásókn er í og að þau gjöld fari að stórum hluta í rannsóknir og markaðssetningu, allt með það sameiginlega markmið okkar að reyna eins og kostur er að efla ferðaþjónustu sem heilsársferðaþjónustu og ná frekar að laða ferðamenn að þessum svokölluðu köldu svæðum. Þetta er auðvitað markmiðið. Ég get ekki almennilega farið í frumvarpið núna. (Forseti hringir.) Ég er ekki með það alveg tilbúið í samráðsgátt og það verður sennilega ekki fyrr en eftir helgi úr þessu. Þá getum við vonandi tekið aftur samtalið um þau mál. Ég næ ekki að ræða þetta með kílómetragjaldið. Auðvitað er það nokkuð sem ferðamenn, (Forseti hringir.) líkt og aðrir sem keyra bíla, greiða en á móti kemur auðvitað bensíngjaldið.