fjárlög 2027.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sitt svar. Það er fróðlegt að heyra að það sé á leiðinni þetta frumvarp um innviðagjald eða ferðamannapassa. Þetta hefur verið kallað ýmsum nöfnum og þetta er svo sem ekki í fyrsta skipti sem við spreytum okkur á því. Reynslan hefur verið sú að þetta er þrátt fyrir allt dálítið flókið í framkvæmd. Það eru grá svæði í þessu. Það er erfitt að afmarka hverjir eiga að borga og hvar gjaldtakan á að fara fram. Er gjaldið tekið á flugmiða, er það á áfangastöðum eða við komuna til landsins? Tekur það til Íslendinga eða útlendinga? Hvað með Íslendinga sem búa erlendis? Svona mætti lengi telja, það eru mörg grá svæði. Ég heyri á hæstv. ráðherra að málið er í vinnslu og ég virði það og tek fram að auðvitað er markmiðið gott, að reyna að dreifa álagi. En mig langaði þó að kanna hvort hæstv. ráðherra myndi vilja dýpka umræðuna og upplýsa okkur um stóru myndina, um hverju við mættum eiga von á í útfærslu o.s.frv. þegar að þessu kemur.