fjárlög 2027.
Forseti. Það er alveg rétt, þetta hefur verið reynt áður og ég hef eiginlega ekki hitt nokkra manneskju sem ekki sér eftir því að það ágæta mál sem ráðherra Sjálfstæðisflokksins vann að fyrir sennilega tíu árum hafi ekki náð fram að ganga. Staðan væri töluvert önnur í dag ef svo hefði verið. Síðan hafa hlutirnir breyst og hv. þingmaður spyr hvort ég geti gefið eitthvað upp. Ég get gert það og nefnt t.d. að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að á meðan unnið er að útfærslu þessa máls skuli tekin upp komugjöld. Það var ekki gert vegna þess að það var ekki skynsamlegt í ljósi stöðunnar að vera að bæta enn á. Við vitum öll að undanfarin ár, óháð því hvaða flokkar hafa setið í ríkisstjórn, hefur byggst upp mjög brotakennd mynd af gjaldtöku í ferðaþjónustu og það er það sem við erum að hluta til að reyna að vinda ofan af. Ég get tekið bílastæðagjöldin sem dæmi. Í því máli sem nú er í lokaundirbúningi fyrir samráðsgátt (Forseti hringir.) er t.d. verið að taka mið af því að það verði ekki bæði tekið bílastæðagjald og þetta innviðagjald. Það verður litið þannig á það. Það hefur komið fram í umræðunni að við erum að líta til þess að það séu einstaklingar með skattalega heimilisfesti á Íslandi sem greiða ekki gjaldið o.s.frv. (Forseti hringir.) Það er því verið að líta til ýmissa þátta og ég bind vonir við það að menn sjái kostina við þetta mál og tækifærin í því.