fjárlög 2027.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma til þessarar umræðu. Mig langar að spyrja um tvennt. Í fyrsta lagi sagði hæstv. ráðherra í svari við spurningu hv. þm. Árna Helgasonar, í tengslum við hækkun virðisaukaskatts á baðlón, að flest baðlón gætu staðið undir þessu. Skil ég hæstv. ráðherra rétt, þ.e. að ráðherra sjái fyrir sér að baðlónin taki þetta á sig? Eða telur hæstv. ráðherra að raunin verði sú að verð hækki sem þessu nemur og það hafi áhrif á eftirspurn og annað og fýsileika þessara frábæru staða sem við eigum sem betur fer mjög marga og flesta úti á landi? Ekkert þessara baðlóna er í Reykjavík, held ég að mér sé óhætt að segja. Það er eitt í Kraganum en önnur held ég að séu í landsbyggðarkjördæmunum þannig að landsbyggðarskatturinn verður nú varla meiri en þetta. En það er bara þetta sjónarmið sem mig langar að heyra hæstv. ráðherra dýpka aðeins, hvort ráðherrann sjái fyrir sér að baðlónin taki þessa hækkun á sig og þá vísa ég í þau orð að flest baðlónin geti staðið undir þessu.
Hitt atriðið sem mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra út í er afstaða ráðherra til þeirrar breytingar er varðar endurgreiðslu virðisaukaskatts á nýbyggingum, þar sem verið er að lækka endurgreiðsluhlutfallið umtalsvert. Byggingargeirinn er í umtalsverðum vandræðum nú um stundir og mig langar að biðja hæstv. ráðherra um að fara yfir hver afstaða ráðherra er til þessa í ljósi þeirrar stöðu og þeirra augljósu áhrifa sem þessi breyting mun hafa á byggingarkostnað.