fjárlög 2027.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir fyrirspurnina. Fyrst varðandi það sem lýtur að baðlónum þá lá það að baki hjá mér, eins og kannski mátti vera augljóst af samhengi hlutanna, að við vorum að ræða um hin kaldari svæði. Þeir staðir sem ekki tilheyra þessum kaldari svæðum, og þá er ég að horfa til baðlónanna á Norðaustur- og Austurlandi, eru það fjölsóttir að þar er bara stöndugri rekstur vegna þess að þar eru fleiri ferðamenn. Hvað einstaka baðlón síðan gera við það að fara að greiða virðisaukaskatt á pari við það sem gerist í samkeppnislöndum okkar ætla ég að leyfa hverjum og einum rekstraraðila að stýra án þess að hafa endilega skoðun á því. En varðandi endurgreiðslur á byggingarframkvæmdum, af því að þetta heyrir ekki undir málefnasvið atvinnuvegaráðuneytisins, þá ímynda ég mér að þar sé hæstv. ráðherra að tala um hótel og uppbyggingu í ferðaþjónustu almennt, bara almennt um iðnaðinn. Þetta er auðvitað endurgreiðsla sem hefur farið stiglækkandi undanfarin ár. Ég þekki það ekki í hnotskurn en ég veit að það hefur verið legið yfir þessum tölum og þær skoðaðar en við höfum oft frekar verið að horfa á fjármagnskostnað almennt sem helstu hindrunina fyrir því að hér sé fjárfest í byggingum.
Það frumvarp sem fjármálaráðherra mælir fyrir hér er einmitt sett fram með sínum markmiðum um hallalaus fjárlög til þess að ná böndum á verðbólgu og vexti sem ég hygg að hafi töluvert að segja um svigrúm iðnaðarins til að halda áfram fjárfestingum, en þetta brot, þessi 30% niðurfelling á endurgreiðslu af vaski, er ekki hið stóra markmið. Eins og hér hefur margkomið fram í máli þeirra ráðherra sem rætt hafa frumvarpið hér í dag (Forseti hringir.) eru þetta um margt frekar sársaukafullar aðgerðir sem þarf að fara í. En markmiðið er skýrt. Náist það eins og stefnt er að, og við erum sannfærð um að það náist með þessu frumvarpi, verður ávinningurinn á þann veg að það verða ekki síst iðnaðurinn og byggingaframkvæmdir sem munu njóta góðs af því.