158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[21:40]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Mig langar í seinni spurningu minni að spyrja hæstv. ráðherra út í þessa miklu skattahækkun á ferðaþjónustuna, á fyrirtækin með beinum hætti eða að fyrirtækin séu sett í þá stöðu að innheimta meiri skatta fyrir hönd ríkissjóðs af seldri vöru og þjónustu. Þessar tölur líta þannig út í dag að það samsvarar um helmingi heildarafkomu greinarinnar árið 2024. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvernig ráðherrann metur þetta í samspili við til þess að gera nýsamþykkta atvinnustefnu sem mér finnst teikna upp allt aðra mynd en birtist í þessum fjárlögum hvað varðar t.a.m. ferðaþjónustuna en vissulega miklu fleiri þætti í atvinnulífinu.