fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra. Sá sem hér talar er alinn upp vestur á fjörðum og gegndi um árabil stöðu sveitarstjóra í fámennu og kvótalausu sveitarfélagi. Súðavíkurhreppur er eitt af eldissveitarfélögunum og er skilgreint sem áhrifasvæði fiskeldis. Þar hefur íslenska fyrirtækið Háafell byggt upp starfsemi sína af fyrirhyggju og varfærinni nálgun á umhverfið. Áhrif þess á sveitarfélagið hafa verið jákvæð og samvinna við félagið með ágætum. Áhrifa laxeldis gætir hvað mest á Vestfjörðum og jafnvel hefur verið talað um vestfirskt efnahagsundur. Viðsnúningurinn hefur verið mikill í sveitarfélögum þar sem sjókvíaeldi hefur haslað sér völl, bæði hvað varðar atvinnulíf og búsetu. En gangur sjókvíaeldis var ekki alltaf sá sem hann er í dag. Frumkvöðlar ruddu brautina og þurftu að sýna bæði þrjósku og staðfestu. Það sama má segja um Kerecis, sprotafyrirtæki sem sprottið hefur upp úr sjávartengdum greinum og hefur náð einstakri velgengni.
Nú horfum við til nýrra tækifæra, m.a. í ræktun stórþörunga og sjávargróðurs. Þar geta legið mikil tækifæri til atvinnuuppbyggingar víða um land enda státar landið okkar af gríðarlegri strandlengju. Möguleikar í greininni geta því verið miklir. Ég vil hrósa hæstv. atvinnuvegaráðherra fyrir að leggja áherslu á að marka stórþörungaræktun strax skýran lagaramma. Í nýjum atvinnugreinum er mikilvægt að leikreglurnar séu skýrar frá upphafi. Sama hugsun birtist í þeirri vinnu sem ráðherra hefur boðað við nýja löggjöf um hafeldi. Reynslan sýnir okkur mikilvægi þess að atvinnugreinar búi við skýran farveg, öflugt eftirlit og fyrirsjáanleika. Reynslan af sjókvíaeldi sýnir okkur hversu mikilvægt er að sætta ólík sjónarmið og skapa atvinnugreinum skýran farveg með öflugu eftirliti og skýrum leikreglum.
Mig langar því að spyrja hæstv. atvinnuvegaráðherra: Hvaða tækifæri sér hún í þessum nýju sjávartengdu atvinnugreinum (Forseti hringir.) og hvernig geta stjórnvöld skapað þeim skilyrði til að vaxa og dafna í sátt við nærsamfélagið?