158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[21:48]
Horfa

Bragi Þór Thoroddsen (Flf):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið. Þetta eru greinargóð svör og mér líst vel á þá vegferð sem verið er að fara í. Ég vil bara leggja áherslu á að það er gríðarlega mikilvægt að skapa lagaramma um eldisgreinarnar sem geta komið til og eru kannski á einhverjum tímapunkti byrjaðar en hafa kannski ekki þróast í þá átt sem verið er að fara. Við höfum sjókvíaeldið fyrir okkur í því að þetta getur valdið sundrungu og misskilningi og í raun neikvæðu umtali um frábæra grein sem skapar gríðarlega atvinnu. Það er engin spurning.