fjárlög 2027.
Aftur þakka ég hv. þm. Braga Þór Thoroddsen fyrir samtalið, athugasemdina. Það er bara nákvæmlega það sem hann nefnir hér sérstaklega sem skiptir máli. Ef við erum ekki tilbúin a.m.k. samhliða þróun svona atvinnugreina — sem hafa þessi burði til að vaxa og skipta jafnmiklu máli og þær gera í nýsköpun, í nýjum tækifærum, fyrir ákveðin byggðarlög sem hafa ekki alveg sömu tækifæri og þéttbýlið hefur til að byggja upp atvinnustarfsemi, til að tryggja íbúum atvinnutækifæri, til að laða að menntað starfsfólk sem hefur áhuga á að byggja upp samfélagið sitt og standa að verðmætasköpun — þá erum við að missa svo mörg tækifæri. Ég trúi því. Hv. þingmaður er hokinn af reynslu, bæði úr Súðavík og í nýju starfi, og kemur við sögu í báðum þeim landshlutum sem ég er ekki síst með í huga þegar kemur að þessu, þannig að ég bara hlakka til áframhaldandi samstarfs um þessi mál.