158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[21:55]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og ætla að byrja á að taka undir þetta varðandi tenginguna við landbúnað. Í mínum huga er það þannig að ferðaþjónusta á Íslandi er ekkert í raun og veru án þess að hún sé hugsuð í samhengi við matvælaframleiðslu og blómlegar sveitir. Ferðamenn vilja menningu og við þurfum að hugsa þessa hluti í samhengi.

Varðandi náttúru- og innviðagjaldið hjó ég eftir því að hæstv. ráðherra talaði um náttúrupassann sem var settur fram fyrir a.m.k. áratug, eitthvað svoleiðis. (atvvrh.: Já. )Í mínum huga hefði sú lausn gjörbreytt þeirri martröð sem margir upplifa í dag varðandi það að við höfum verið að færast í átt að bandarísku leiðinni þar sem þú gjörsamlega þarft að borga þig inn á hvern einasta foss, hvern einasta hlut. Til skamms tíma getur það verið gróðavon fyrir einhverja en til lengri tíma getum við verið að drekkja ferðamönnum (Forseti hringir.) í gjöldum og draga úr samkeppnishæfni. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Erum við að halda áfram á brotakenndari leið með því að hugsa eitt gjald fyrir Gullfoss (Forseti hringir.) og Geysi og eitt mögulega fyrir eitthvað annað í staðinn fyrir að fara nýsjálensku leiðina og hafa þetta bara eitt gjald fyrir landið í heild sinni?