fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Fyrir stuttu síðan var mikið rætt um og barist fyrir því að gera ferðaþjónustuna að heilsársgrein. Jafna þyrfti út árstíðasveifluna og betrumbæta starfsumhverfi greinarinnar þannig að svo mætti verða. Árið 2014 var t.d. verkefninu Ísland allt árið hleypt af stokkunum af stjórnvöldum sem hluti af „Inspired by Iceland“.
Forseti. Það er ekki lengra síðan að við vildum reyna að festa ferðaþjónustu í sessi sem heilsársatvinnugrein og auka arðsemi í greininni. Baðlón eru vinsælir áfangastaðir og eru mikið aðdráttarafl fyrir lítil samfélög úti á landi, búbót jafnvel. Laugarás Lagoon, Vök á Egilsstöðum og Jarðböðin við Mývatn. Þessi baðlón gera þorpin í kring að ákjósanlegri áfangastöðum en ella. Fólk kemur, baðar sig, borðar á veitingastaðnum og gistir svo í nærsamfélaginu. Persónulega finnst mér þetta frábær þróun og ég er einlægur aðdáandi baðlóna. En það eru ekki bara ferðamenn sem sækja þessi böð, t.d. í Vök og í Skógarböðunum á Akureyri er meiri hluti gesta á veturna Íslendingar, hvort sem það eru íbúar á svæðinu eða aðkomufólk. Það er ekkert launungarmál að meiri hluti ferðamanna ferðast ekki víðar en um Suðurlandið og suðvesturhornið. Það er verkefni okkar stjórnmálamanna að reyna að skapa ferðaþjónustunni umgjörð sem hún þarf til að stækka og dreifa ferðamönnum jafnar yfir landið árið um kring. Ferðaþjónustan er nefnilega útflutningsgrein sem skapar okkur nauðsynlegar gjaldeyristekjur og án þeirra getum við illa verið og ættum að kappkosta að efla slíkar undirstöður.
Í þessu ljósi skýtur skökku við að baðlón séu nú tekin sérstaklega út fyrir sviga og færð upp um virðisaukaskattsþrep. Það má benda á að ársreikningar þessara fyrirtækja gefa ekki til kynna að það sé verið að maka krókinn með nokkrum hætti. Svo eru búnar að vera miklar fjárfestingar í þessari grein á síðustu árum og því er fyrirsjáanleikinn gríðarlega mikilvægur. Því vil ég spyrja hæstv. atvinnuvegaráðherra af hverju það sé verið að taka baðlón sérstaklega út fyrir sviga og færa þau upp um virðisaukaskattsþrep.