fjárlög 2027.
Ég þakka hv. þm. Ingveldi Önnu Sigurðardóttur fyrir góða fyrirspurn og hún er á pari við það sem hefur komið fram hér í umræðunum almennt. Þessar áherslur sem hv. þingmaður nefnir að séu svo mikilvægar, að ná að tryggja eins og við getum, með þeim tækjum sem við höfum yfir að ráða, dreifingu ferðamanna meira um landið allt annars vegar og hins vegar dreifingu ferðamanna á milli árstíða. Það hangir eiginlega saman vegna þess að það liggur fyrir að á þessum köldu tímum þegar ferðamönnum fækkar, eins og við þekkjum, þá eru það akkúrat þessi kaldari svæði sem finna fyrir því þannig að þetta er svo stórt verkefni.
Það er alveg rétt sem hv. þingmaður nefnir að baðlónin eru misvel stödd. Þessi atvinnugrein hefur vaxið og bætt alveg stórkostlega í flóru okkar í ferðaþjónustunni og þessi vellíðunarferðaþjónusta sem við erum að verða býsna leiðandi í er algerlega frábær nýjung. Mörg þessara fyrirtækja njóta mikillar eftirspurnar en það eru þessi svæði, eins og ég nefndi fyrr í kvöld og hv. þingmaður nefnir, fyrir austan og fyrir norðan og síðan á öðrum svæðum þar sem er ekki jafn mikill fjöldi ferðamanna. Þessir staðir skera sig úr að því leyti að Íslendingar koma þarna líka. Ég get bara sagt það að við erum að hefja samtöl, erum að undirbúa samtöl og erum í samtali um það hvernig við getum á einhvern hátt með markaðssetningu og með þeim tækjum og tólum sem við höfum, m.a. með Framkvæmdasjóði ferðamannastaða sem ég nefndi sérstaklega áðan, stutt við þessi svæði. Spurning hv. þingmanns hins vegar um það hvers vegna baðlónin eru tekin sérstaklega út og sett í hærri flokk líkt og þekkist í löndunum í kringum okkur er kannski spurning sem ég held að ráðherra skattamála verði að svara (Forseti hringir.) vegna þess að þetta mál er ekki á minni könnu. Ég er að vinna með hæstv. fjármálaráðherra í því að ná utan um umgjörðina um ferðaþjónustu almennt en nákvæmlega (Forseti hringir.) hvað varð þess valdandi verður sá ráðherra sem tók þessa ákvörðun að svara.