fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að ég sé ekki hvernig aukin skattlagning á þessa grein mun dreifa ferðamönnum jafnar yfir landið en það er bara mín sýn. (Gripið fram í.) En það er augljóst af orðræðu hæstv. ráðherra og stjórnarliða að ef einni atvinnugrein gengur smá vel þá skal sko skattleggja hana. Bara í þessum fjárlögum er verið að hækka skatta á ferðaþjónustuna um 10–11 milljarða á einu bretti. Það sér það hver maður að það mun koma niður á samkeppnishæfni greinarinnar. Hvað næst? Aðrar greinar ferðaþjónustu eru einnig í neðra virðisaukaskattsþrepi. Mega þær vænta þess að verða næst í röðinni? Þegar sitjandi ríkisstjórn var mynduð þá sagði hæstv. utanríkisráðherra, sem er einnig formaður Viðreisnar, mjög skýrt að það ætti ekki að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustuna. Af hverju varð þessi stefnubreyting, hæstv. atvinnuvegaráðherra?