fjárlög 2027.
Forseti. Hv. þingmaður slær engar keilur með því að snúa út úr orðum mínum eða leggja mér eitthvað í munn sem ég ekki sagði. Þegar ég talaði um dreifingu ferðamanna var ég að ræða náttúru- og innviðagjald sem er ætlað til þess og mun verða til þess. Það gjald sem verður tekið af ferðamönnum við komuna hingað verður m.a. nýtt til að tryggja dreifingu ferðamanna, svo það sé sagt aftur.
Varðandi spurningu hv. þingmanns þá ætla ég aftur að vísa í það að ég er hér til að svara fyrir þau mál sem eru á mínu málefnasviði og varða risastórt ráðuneyti atvinnuvega. Ferðaþjónusta er þar undir, skattamál eru þar ekki þannig að aftur verð ég að vísa spurningum hv. þingmanns um orð og gerðir annarra ráðherra til þeirra. Þeir hafa báðir staðið hér fyrir svörum í dag og það eru hæg heimatökin.