158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[22:05]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Forseti. Stóra markmiðið okkar með því að leggja fram hallalaus fjárlög í fyrsta skipti um árabil er að ná niður verðbólgu og vöxtum. Ég er, líkt og aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar, stjórnarþingmenn og mjög margir þess utan, sannfærð um að það er fátt sem við gerum betra fyrir okkar helstu atvinnugreinar en nákvæmlega það. Það er hins vegar ástæða fyrir því að þetta hefur ekki verið reynt lengi og er verkefni sem ekki hefur tekist að ljúka: Það er erfitt. Það er gríðarlega erfitt, hvort sem er tekju- eða gjaldamegin. Ég hefði gjarnan viljað að hér væru bara sem lægstir skattar úti um allt og að hér væru sem mest útgjöld á þær velferðargreinar okkar sem þess þyrftu. Til að ná þessu þurfum við að ná hallalausum fjárlögum og það er markmiðið. Þannig að svarið er: Náum við því er þetta til þess unnið. Það er einfaldlega þannig. Þetta er stóra verkefnið okkar. Við getum ekki haldið áfram að pissa í skóinn okkar. Það er engum til góðs og allra síst ferðaþjónustunni.