fjárlög 2027.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og vil þá í þessari síðustu innkomu minni hér í kvöld spyrja hæstv. ráðherra um afstöðu hennar til þeirra sjónarmiða sem samtök fyrirtækja í ferðaþjónustu hafa sett fram undir formerkjunum „Stækkum kökuna“. Telur hæstv. ráðherra að þessar viðbótartekjur í ríkissjóð, sem svo sárlega vantar að mati ráðherra og fjármálaráðherra sérstaklega, hefðu getað komið með öðrum hætti en með þessari miklu beinu auknu gjaldtöku og sköttum af greininni sem ber býsna hátt hlutfall þeirra viðbótarskatta og gjalda sem lögð eru á núna? Ferðaþjónustan er að fara ansi illa út úr þessu, svo það sé bara orðað varlega. Því langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hver afstaða hennar sé til þeirra sjónarmiða sem samtök aðila í ferðaþjónustu setja fram undir yfirskriftinni „Stækkum kökuna“.