fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Mig langar aftur til að þakka hæstv. ráðherra fyrir að eiga þetta samtal hér í kvöld. Það er búið að vera gagnlegt á marga vegu. Mig langar í seinni umferð að færa mig yfir í landbúnaðinn. Ég veit að eitt af því sem við brennum fyrir snýr að fæðuöryggi, snýr að nýliðun í landbúnaði til að tryggja fæðuöryggi. Ef við erum ekki með nýliðun þá grefur smátt og smátt undan stéttinni alveg eins og við höfum verið að sjá fækkun þegar við horfum aftur í tímann. Það er algerlega bráðnauðsynlegt að við séum að hugsa um atvinnumálin með þeim hætti að við snúum þessari þróun við og við séum í eitt skipti fyrir öll að ná viðspyrnu. Það snýr að mörgum þáttum sem varða fjárlögin. Það getur snúið að erfðaskattsmálum, getur snúið að hvötum sem tryggja það að jarðir geti færst á milli kynslóða og það getur líka snúið að þeim sem vilja einfaldlega koma nýir inn í greinina. Þegar ég horfi á frumvarpið þá sé ég ekki þessa sameiginlegu áherslu sem mér finnst ríkisstjórnin hafa talað fyrir, ég sé hana ekki birtast í fjárlögunum sjálfum. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvernig leiðin sé fram á við, hvort við sjáum þetta ekki í fjárlögunum og hvort það séu einhverjar aðrar leiðir, bara til að gefa mér aðeins fyllri mynd.