158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[22:14]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Við þekkjum þessa frestun en ég verð að segja að ég er óþolinmóð að sjá breytingar eins og t.d. á skattaumgjörð og öðru sem getur nýst því þetta er einfaldlega grein sem þolir ekki bið. Ég tek undir með hæstv. ráðherra að vissulega er það þannig að margar jarðir nýtast fyrir ólíka hluti og ég held einmitt að það sé spennandi þegar við hugsum um framtíð landbúnaðarins. Þetta er fjölbreytt grein sem á svo mikið inni, endalaus sóknarfæri sem við þurfum einhvern veginn að ná utan um í nýjum samningum og ég vænti mikils. Látum þessa samninga verða viðspyrnusamningana fyrir landbúnað á Íslandi og fyrir matvælaframleiðslu í heild.

Að lokum langar mig til að beina sjónum að hafeldinu og stórþörungunum og segja einfaldlega: (Forseti hringir.) Ég hvet hæstv. ráðherra til dáða í þeirri vinnu. Það er gríðarlega mikilvægt að ná utan um regluverkið áður en farið er af stað, sama hvort það á við um leyfisveitingar, auðlindagjöld eða annað, allt þetta. (Forseti hringir.) Hérna er verk að vinna og ég hvet hæstv. ráðherra til dáða og heiti góðu samstarfi hvað það varðar.