158. löggjafarþing — 4. fundur, 11. sept. 2026.
fjárlög 2027.
1. mál
Í dag verður haldið áfram umræðu þar sem ráðherrar taka þátt í umræðunni um sína málaflokka. Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Þegar umræðum um einstaka málaflokka ráðherra lýkur verður haldið áfram með almenna umræðu þar sem frá var horfið í gær. Við lok umræðunnar talar fjármála- og efnahagsráðherra á ný og hefur til þess 10 mínútur. Þá tala talsmenn allra þingflokka í allt að 10 mínútur hver og að endingu verða lokaorð ráðherra. Andsvör eru ekki leyfð.