158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[10:37]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir hans framsögu í þessu máli. Í fjárlagafrumvarpinu segir að fjölga eigi brautskráningum á sviðum þar sem mönnunarþörf er fyrir hendi, oft talað um svokallaðar STEM-greinar. Vísindagreinar, tækni, verkfræði og stærðfræði eru þar undir. Þetta eru einmitt greinar sem PISA-prófið mælir og við höfum fengið nýlegar niðurstöður úr. Þetta eru greinar sem eru oft drifkraftur nýsköpunar, en það svið tilheyrir einmitt ráðuneyti hæstv. ráðherra. Það er skynsamlegt markmið að fjölga brautskráningum í þessum greinum og það er líka skynsamlegt að opinberir aðilar nýti fjármuni vel og fækkun stöðugilda getur verið leið til þess. En hvar er heildarsýnin? Við fjölgum ekki verkfræðingum og tæknimenntuðu fólki, stærðfræðingum eða sérfræðingum í raunvísindum með því einu að skrifa það inn í fjárlagafrumvarpið að fjölga eigi brautskráningum í STEM-greinum. Þeir nemendur verða ekki til við dyr háskólanna. Grunnurinn er lagður löngu fyrr. Raunar virðist ríkisstjórnin átta sig á þessu því að í frumvarpinu eru 380 milljónir ætlaðar til námsgagna í grunnskólum sem er sérstaklega beint til þessara greina, STEM-greinanna, nýsköpunargreinanna, vísindagreinanna. Á framhaldsskólastigi er síðan sagt að leggja eigi áherslu á greinar og fjölga brautskráningum nemenda í STEM-greinum í háskólunum.

En hver er tengingin á milli þessara skólastiga? Er eitthvert samtal búið að fara á milli? Hefur hæstv. háskólaráðherra sest niður með mennta- og barnamálaráðherra og mótað samfellda áætlun til að gera þetta sem stendur í frumvarpinu? Og hver eru markmiðin? Hversu mikið á að fjölga brautskráningum og fyrir hvaða ár? Hyggst ráðherra hvetja til endurskoðunar á kennaranámi þar sem lenging í fimm ár virðist ekki hafa skilað sér í betri lesskilningi? Þetta eru þær spurningar sem ég vil leggja fyrir ráðherra að sinni.