fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Þetta er afar brýnt mál sem hv. þingmaður kemur hér inn á. Þetta vandamál sem við stöndum frammi fyrir er ekki vandamál einhvers eins eða tveggja eða þriggja í samfélaginu heldur er það viðvarandi þróun sem hefur átt sér stað yfir langan tíma. Það er líka rétt hjá hv. þingmanni, það er langur vegur í gegnum skólakerfið sem leiðir svo stundum til háskólamenntunar þannig að það er ekki nóg að byrja að taka á hlutunum akkúrat þá. Þess vegna höfum við hæstv. mennta- og barnamálaráðherra einmitt hafið þetta samtal sem lýst var hér eftir. Það þarf að gera ýmislegt en það er ýmislegt hægt að gera núna. Í mínu ráðuneyti erum við að endurhugsa og lagfæra reiknilíkanið þannig að það myndist hvati fyrir háskólana til þess að leggja meiri áherslu á heilbrigðisgreinar og STEM-greinar. Það er nú það fyrsta.
Í öðru lagi höfum við líka töluleg gögn sem sýna okkur að fyrsta árið t.d. í verkfræði eða stærðfræði eða erfiðum raungreinum er oft erfiður hjalli. Það er mikið brottfall og fólk leitar þá gjarnan yfir í aðrar greinar. Við viljum koma þarna inn með aðstoð vegna þess að það er hægt með markvissum hætti að koma þér yfir þennan hjalla sem verður svo auðveldari eftir það. Við hyggjumst núna í vetur hefja samstarf, t.d. við einhverja tvo framhaldsskóla og tvo háskóla, og fjármagna fyrir þá samstarf þeirra á milli þannig að efnilegir unglingar í raungreinum í menntaskólum geti áunnið sér háskólaeiningar sem nýtast þeim þegar þau koma svo yfir í háskólana og þannig getur myndast hvati til að sækja í þessar greinar.
Það er ýmislegt sem við erum að gera og ég kem inn á fleira í næsta andsvari ef spurningar verða á þeim nótum.