fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég held áfram þar sem frá var horfið vegna þess að spurningarnar eru á sömu nótum og þetta er ágætissamtal. Það sem við erum að gera umfram það sem ég nefndi í fyrra andsvari mínu er að við höfum t.d. hrint af stað alþjóðlegri óháðri skoðun á kennaranámi á Íslandi. Þetta varðar fjóra háskóla: Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Akureyri og Listaháskólann. Þetta er unnið í ágætu samstarfi við þau vegna þess að við þurfum að komast að því hvernig kennara við erum að búa til og hvort þeir þurfi að búa yfir annarri hæfni. Við erum með ýmis verkefni þar sem fólk t.d. á vinnumarkaði fer inn í grunnskóla og kynnir störf, þannig að það er ýmislegt hægt að gera svona frá degi til dags. En ég held að grunnurinn sé, og ég held að við séum sammála um það, að það þurfi að byrja fyrr að glæða áhuga ungra nemenda strax í barnaskóla á þessum STEM-greinum, á íslenskunni. Það þarf örugglega að leggja mikið meiri áherslu á fyrstu skólastigunum á kjarnafögin og byggja svo ofan á það.