158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[10:44]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V):

Virðulegi forseti. Mig langar að byrja á því að þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir framsöguna. Það er alveg rétt sem fram kemur í hans máli að það er svo sannarlega áskorun að greiða niður skuldir fyrri ríkisstjórna. En í þessu geta líka falist tækifæri og það er mikilvægt að skapa ný tækifæri og útfæra nýjar hugmyndir. Þess vegna fagna ég mjög því sem kemur fram í fjárlagafrumvarpinu varðandi m.a. nýsköpun í heilbrigðisþjónustu. Nýlega var viðtal við forstjóra Heilsuverndar í fjölmiðlum þar sem hann tók einmitt undir þessar hugmyndir varðandi nýsköpun í velferðarþjónustu og sér fyrir sér tækifæri, m.a. með gervigreind.

Mig langar að varpa spurningu til ráðherra varðandi þessa þróun og hvernig hann sér fyrir sér þróun á þessu sviði varðandi gervigreindina og hvernig við getum nýtt okkur hana til að skapa ný tækifæri og eins líka til að leita leiða til að hagræða í okkar rekstri. Það er gríðarlega mikilvægt að sinna rannsóknum og efla þjónustu á því sviði og gera það í samstarfi við háskólana en ekki síður atvinnulífið. Við eigum gríðarlega mikið af sterkum og öflugum fyrirtækjum sem eru í rannsóknum. Ég er mjög upptekinn af velferðartækninni en vissulega eru þessi fyrirtæki á öðrum sviðum líka. Það væri áhugavert að heyra hvernig ráðherra sér fyrir sér einmitt ekki bara samstarf við háskólasamfélagið heldur einnig við atvinnulífið á þessu sviði.

Ég kem frekar inn á önnur mál í síðari ræðu minni.