fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Annað sannarlega mikilvægt mál og hér sannast að lítil þjóð á líka stundum sterka möguleika þegar kemur að miklum breytingum. Við eigum t.d. mjög góða gagnagrunna sem við erum að fjárfesta núna í að bæta. Við eigum verðmætar erfðaupplýsingar um nánast alla þjóðina sem geta komið okkur að gagni. Þarna erum við t.d. á gervigreindarsviðinu að leggja áherslu á, í samstarfi við Almannaróm, þetta risamállíkan okkar þar sem við munum hins vegar búa til málheildir á ákveðnum sviðum, heilbrigðissviðið er eitt af þeim, til þess að efla möguleika fólks til að þróa og búa til tækni. Þessu höfum við fylgt eftir, t.d. á síðasta ári með því að setja 400 millj. kr. inn í samstarfsverkefni við Kríu, Heilsu Kríu, þar sem við leggjum beinlínis áherslu á að það séu keyptar lausnir sem eru í þróun fyrir heilbrigðiskerfið. Heilbrigðisráðuneytið hefur á sama tíma búið til stafræna heilbrigðisstofu, getum við sagt, sem er í rauninni að aðstoða við þetta og er að tryggja að sú vara sem er verið að búa til henti í fyrsta lagi heilbrigðisstofnunum, sé það sem okkur vantar og að heilbrigðisstofnanir séu ekki of íhaldssamar og séu tilbúnar til að koma. Það er verið að reyna að byggja brýr og höggva niður múra. Við höfum t.d. líka fyrr á þessu ári átt samtal við Apple vegna þess að íslensk tækni þarf að vera inni í þessum helstu tæknitækjum sem við notum dagsdaglega. Dæmi um af hverju við erum að leggja áherslu á Apple er að Apple hefur þróað alveg ótrúlega magnaðar lausnir til að hjálpa fötluðu fólki sem getur oft ekki nýtt sér önnur tungumál en íslensku þannig að við viljum ryðja þeim hindrunum úr vegi. Tæknin á eftir að verða okkur til góðs eins og önnur og við þurfum að vara okkur á ýmsum öngum hennar.