fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir hans svar og hans innlegg í þetta. Mér er mjög hugleikin, eins og ég hef komið inn á, velferðartækni í heilbrigðisþjónustu. Mig langar að nefna í því sambandi tvö mikilvæg verkefni, annars vegar stórt og öflugt fyrirtæki sem staðsett er á Akureyri sem heitir Þula, og ég veit að ráðherra þekkir ágætlega, sem er að vinna að hugbúnaðarmálum og tæknilausnum í heilbrigðisgeiranum, og svo þennan ágætisklasa sem heitir Veltek og er einnig starfræktur fyrir norðan. Það væri ágætt að heyra aðeins dýpra frá ráðherranum varðandi það hvernig hann sér samstarf við svona aðila.
Svo fagna ég einnig líka áframhaldandi stuðningi við kvikmyndagerð og hljóðritun tónlistar, því það er líka gríðarlega mikilvægt verkefni sem við þurfum að standa við bakið á og síðan að sjálfsögðu, þar sem við deilum nú áhugamáli, stuðningi við söngnám.