158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[10:50]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Já, við munum birtast með heildarendurskoðun á umgjörð um kvikmyndir seinna í vetur og það skiptir gríðarlega miklu máli eins og hv. þingmaður kemur inn á. Þetta er mikilvæg atvinnugrein.

Það sama á auðvitað við um tónlistina og aðstoð við upptöku á tónlist. Já, við deilum áhuga á söng þó svo að hv. þingmaður sé eflaust betri söngvari en ég. Ég hef gaman af að hlusta og við erum t.d. núna í fyrsta skipti að fara með aukinn stuðning til KÓRÍS, sem er svona samstarf kóra á landinu, vegna þess að eitt er atvinnufólkið í músík, en hitt eru bara þessar tugþúsundir Íslendinga á öllum aldri sem eru að syngja saman í öllum byggðarlögum, sem skiptir máli.

Við fylgjumst vel með hvað þessi fyrirtæki eru að gera, Þula og önnur. Þau geta leyst ótrúlega mikið fyrir okkur. Við þurfum öll á mikilli þjónustu að halda síðustu 10–20 ár ævinnar og það er auðvitað bara ótrúlegur vöxtur á kostnaði við umönnun okkar síðustu árin þannig að við þurfum að nota þessa tækni (Forseti hringir.) og við fylgjumst vel með þessum fyrirtækjum og styðjum þau af bestu getu.