fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Mér er kunnugt um að hv. þingmaður starfaði á fjölmiðlum og ég tók eftir honum þar fyrst og mig minnir meira að segja að ég hafi mætt í hlaðvarp til hans fyrir fjórum eða fimm árum. Ég veit að hann þekkir málaflokkinn og hann veit auðvitað alveg jafn vel og ég — þó að það sé alveg rétt að það getur vel verið að þeir sem sigla hægast ölduna hafi kannski einhverja forgjöf í traustsmælingum og þeir sem eru djarfir rannsóknarblaðamenn geri það ekki og það verða skiptar skoðanir um þá. Engu að síður skiptir traust alveg gríðarlega miklu máli. Kannski hef ég komið hlutunum eitthvað vitlaust út úr mér áðan. Það er ekkert verið að gefa í gagnvart Ríkisútvarpinu. Við erum hins vegar að gefa í gagnvart einkareknum fjölmiðlum. Ég hef hins vegar sagt það skýrt og stend við það að á minni vakt veikjum við ekki Ríkisútvarpið, sérstaklega ekki á þessum tímum sem við erum að glíma við í dag og ég spyr þá hluta stjórnarandstöðunnar sem hefur mikið talað um þetta: Hvar voruð þið? Hvað gerðuð þið? (Forseti hringir.) Hvenær tókuð þið Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði og hvenær minnkuðuð þið það?