158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:03]
Horfa

Jónína Björk Óskarsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra — þetta er svo langt orð — kærlega fyrir svörin. Að lokum langar mig að spyrja — nú veit ég að það var fyrir svona sjö, átta árum að Félag eldri borgara byrjaði að vera með tölvunámskeið sem breytti geysilega miklu fyrir þá sem þjónusta eldri borgara. En að lokum langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra hvernig hann sjái fyrir sér að efla megi samstarf háskóla, heilbrigðisstofnana og íslenskra nýsköpunarfyrirtækja þannig að rannsóknir og góðar hugmyndir skili sér í raunverulegum lausnum og betri þjónustu fyrir almenning.