fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir hans ræðu hér. Hann kom skýrt inn á að það fá ekki alltaf allir allt sem þeir vilja og það hefur svolítið verið gangur lífsins, held ég, hjá okkur öllum. En þá skiptir forgangsröðun auðvitað líka gríðarlega miklu máli: hvernig við ráðstöfum fjármagninu og hvernig við skilgreinum líka árangurinn sem við viljum sjá af þessu fjármagni sem við erum einmitt að forgangsraða til ákveðinna verkefna. Ráðherra kom inn á það áðan að hann vildi fjölga útskrifuðum nemendum frá háskólunum. Ég tek heils hugar undir það með honum, sérstaklega í ljósi þess að við vorum að ræða menntamál hér í gær. Hv. þm. Jón Pétur Zimsen kom líka inn á það hérna áðan í fyrirspurn til ráðherrans, í andsvari, varðandi menntaða kennara, því að nú sjáum við að stór hluti kennara er að komast á aldur og er að fara út úr kennslu eðli málsins samkvæmt, en á móti er ekki nægilega stórt hlutfall nýrra kennara að koma inn. Þetta er mikið áhyggjuefni í ljósi þeirrar umræðu sem hefur verið núna í kringum PISA og fleira, hvernig við ætlum að takast á við þetta. Í gegnum tíðina hefur verið farið í eitthvert skammtímaátak, en það er ljóst að það þarf að fara í langtímaátak. Mig langar að spyrja í ljósi þessa: Er eitthvert eyrnamerkt fjármagn sérstaklega til þess að fjölga kennurum til framtíðar? Hvað er það mikið, ef svo er? Hvað á þá að fjölga útskrifuðum kennurum mikið? Hvernig kemur það fram í markmiðum og mælikvörðum? Ég var að reyna að finna út úr þessu á heimasíðu ráðuneytisins en ég sé það ekki.