158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:12]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Já, þetta er áhugaverð umræða sem á sér stað hérna og mig langar að stinga mér aðeins inn á sama stað og annar þingmaður hefur gert hérna og ræða um fjölmiðlaumhverfið. Það var gríðarlegt högg, svo ekki sé meira sagt, þegar Sýn ákvað að hætta nú fyrir skemmstu sjónvarpsfréttaútsendingum sínum. Það kom kannski ekki alveg á óvart því að við munum eftir því síðastliðinn vetur þegar hæstv. ráðherra kynnti í fjármálaáætlun og aðgerðaáætlun um fjölmiðla hvernig brugðist yrði við þessari gríðarlega erfiðu stöðu sem ríkt hefur á fjölmiðlamarkaði. Samt sem áður kom fram eftir þær tillögur mjög hörð gagnrýni frá stærstu fjölmiðlum þessa lands á þær fyrirætlanir sem þar voru lagðar fram, mjög hörð gagnrýni og ekki síst frá Sýn, og ég vil kalla það neyðaróp sem barst hérna fyrr á árinu. Nú erum við komin á þann stað að ríkið eitt gínir yfir þessum þætti fjölmiðlanna, er einrátt á þessum markaði, og við erum komin í hóp með nokkrum einræðisríkjum þar sem aðeins ríkið sinnir sjónvarpsfréttaþjónustu. Það getur vart verið hlutverk ríkisins að skekkja samkeppnina eins og hér um ræðir og eins og við þekkjum og kæfa í raun sjálfstæðan rekstur. Og ég vil ekki fá þau viðbrögð frá hæstv. ráðherra að þeirri spurningu sé varpað fram: Af hverju var þetta ekki gert fyrr? Já, það er alveg hægt að spyrja sig að því. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki staðið í vegi fyrir því. Það hefur ekki verið þingmeirihluti fyrir því, hvorki í tíð fyrri ríkisstjórnar né síðastliðið haust (Forseti hringir.) þegar frumvarpið var lagt fram. En mig langar til að fá viðbrögð frá hæstv. ráðherra um hvort afstaðan til stöðunnar á þessum markaði (Forseti hringir.) hafi eitthvað breyst eftir að fréttastofa Sýnar lagði upp laupana í sjónvarpi.